3.2.2007 | 11:14
Er nú ekki nóg komið.
Er nú ekki nóg komið. Hvað með að fjölmiðlafólk hugi að því að skrifa og fjalla um það sem
það getur sannreynt eða hefur vit á, en elta ekki tísku, heimsósóma prédikara, náttúrutrúboða og
stjórnmálamenn sem nýta sér aðstæður til að prédíka heimsendi og hreinsunareld, nokuð sem
kirkjan tíðkaði að gera sér til framdráttar og auðs hér á öldum áður.
Veraldarundur sem marg oft var tuggið á í útvarpi allra landsmanna var þegar sorpuforstjórinn fullyrti að metan bílar hans %u201Cmenguðu%u201D svo lítið að það þyrfti 113 slíka til að jafnast á við einn knúinn bensíni. Jæja hugsaði ég, hann hefur fundið upp ígildi perpetum mobile.
Það þarf ekki mikla kunnáttu í raungreinum til sjá að ef þú ekur tveimur samsvarandi bílum frá
A til B, þarf jafn mikla orku eða hitaeiningar á bíl og þar sem metanbíll og bensinbíll brenna
sömu tegund af eldsneyti þ.e. kolvetni, er útblástur bílanna nánast sá sami hjá báðum. Annað
dæmi er þegar einhver umhverfisfræðingur íslenskur sem starfar erlendis (sem fréttamanni þótti
ígildi einskonar gæðastimpils) skrifaði grein þar sem hann snupraði íslendinga fyrir að hafa ekki þegar verið búnir að vetnisvæða bíla og skip og lét í veðri vaka í greininni að ríkissjórninni væri um að kenna, þeim ónytjugum og dusilmönnum. Þetta var sent út þrisvar sama daginn og smjattaði
hinn hlutlausi fréttamaður vel á dugleysi stjórnarinnar, Það er almennt talið að það taki um 10 til 15
ár að leysa tæknileg atriði í vetnisvæðingunni sem eru skilyrði fyrir almennri notkun á vetni sem brennsluefni.
Þessi dæmi er frekar saklaus miðað við það sem nú herjar á, þar sem fullyrt er að maðurinn sé að tortíma sjálfum sér, nú með tækniframförum, áður var það syndsamlegt líferni og kirkjunar prédikarar voru duglegir að nota kenningar um hreinsunareldinn til mylja undir kirkjuna völd og auð.
Nú eru það náttúruprétdakarar og stjórnsýslumenn sem nota vanþekkingu almennings sjálfum sér til framdráttar.
Nú er uppi sú kenning að koltvísýringur (CO2) hafi áhrif á hitastig jarðar með svokölluðum gróð-
urhúsaáhrifum. Talsmenn þessarar kenningar halda því fram að CO2 myndi gróðurhúsaþak um
jörðina og varni útgeislun á hita. Meðal þétting CO2 er 3 til 4 tíuþúsundustu hlutar loftsins, ætli
það hafi einhver áhrif. Skýjahulan hefur margfalt meiri áhrif, hver kannast ekki við næturfrost á
heiðskírum nóttum. En það sem kollvarpar þessari kenningu er sú eðlisfræðlega staðreynd að
eðlisþyngd koltvísýrings er 1,5 til 1,8 sinnum hærri en annara lofttegunda andrúmsloftsins og er því jarðlægt þ.e. liggur við yfirborð jarðar en finnst í litlum mæli í efri loftlögum og sígur að yfirborði jarðar ef það myndast þar (flugumferð). Annað í eðli CO2 er að efnið hefur háann hitastuðul, eða
126 kal. á g til að hita það upp um 1 gráðu á C (ca 50% hærra en vatns). Þessi eiginleiki
hefur verið nýttur og efnið verið notað sem kæliefni í margvíslegri tækni. Það vekur furðu að
ekki er minst á það að því meira magn af CO2 í lofti, því lægra verður hitastig loftsins að öðru
óbreyttu.
Það ætti öllum að vera ljóst að á landnámsöld var hér á landi og mjög sennilega á jörðinni allri hlýrra,
svo mikið að hér var stunduð akuryrkja og jöklar voru litlir. Hinn mikli Vatnajökull hét til forna
Klofajökull og menn riðu norður á land yfir klofann. Norrænir menn silgdu til Grænlands og hófu
blómlegan búskap. Á 15. öld fer að kólna og hefst þá það sem hefur verið kallað litla ísöld. Jöklar
stækka, akuryrkja legst af, norrænir menn deyja út á Grænlandi og íslendingar enda í mannfjölda sem er 1/3 til 1/4 af því sem var. Litla ísöld er talin að hafa endað um 1900 þegar fer að hitna á
jörðinni og mesta hækkun hitasigs verður frá 1920 til 1940 þegar aftur hægir á. Þeir Eigil Friis Christensen og Knut Lassen starfsmenn Dönsku Veðurstofunar (Sol-Jord Fysik sektion) rituð grein í Science árið 1991, þar sem þeir sýna fram á að algjör fylgni er á milli hitastigs jarðar og virkni sólar og byggja á mælingum frá 1860 til 1990. Með C14 mælingum hefur verið hægt að rekja fylgnina lengra aftur í tímann. Ég skora á Sjónvarpið að sýna þáttinn sem sýndur var á TV1 Dk 21-11-06 undir nafninu Viden om,Klimaet styres fra Rummet. Ætli það sé ekki gamla móðir Sól sem öllu ræður um hag jarðar.Hvað skyldi valda þessu tali um gróðurhúsáhrif, jú ætli það sé ekki svo að sá (þeir) sem ráða því hver fær að brenna hverju og framleiða hvað eru með heimsyfiráð í hendi sér. Gamla klerkastéttin í nýju fötum keisarans.
Einnig var athyglisverður þáttur um virtan vísindamann sem helgaði sig mælingum á CO2 í efri hæðum. Þátturinn var sýndur 28.12.06 á BBC World. Þar var flogið upp í nokkur þúsund fet og tekin loftsýni í gegnum gat á glugga vélarinnar. Flugvélinn var Cessna 178 4ra sæta með 200 hesta bensínhreyfli í nefinu sem spúir út 10-15 kg af CO2 á mínútu.
Þetta gerði ein af þeim 2-3 þúsund virtu VÍSINDAMÖNNUM sem skrifa skýrslur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)